26. nóv. 2006

Ekki land



Föstudaginn 1. desember kl. 20:00 opnar Steini – Þorsteinn Gíslason – myndlistarsýninguna „Ekki land“ í Populus tremula.
Sýningin verður einnig opin laugardaginn 2. og sunnudaginn 3. desember kl. 14:00-17:00. Aðeins þessi eina helgi.

20. nóv. 2006

Hræ og formælingar




Laugardaginn 25. nóvember kl. 14:00 opnar Gústav Geir Bollason myndlistarmaður sýninguna „Hræ og formælingar“ í Populus tremula.
Einnig opið sunnudaginn 26. nóvember kl. 14:00-17:00.
Aðeins þessi eina helgi.

13. nóv. 2006

Sigríður Ágústsdóttir sýnir




Laugardaginn 18. nóvember kl. 14:00 opnar Sigríður Ágústsdóttir sýningu í Populus tremula. Í bænum Vallauris í suður Frakklandi, sem þekktur er fyrir leir og leirlistarmenn, eru kirkjugarðar eins og víðast annars staðar. Þar kaupir fólk hins vegar ekki afskorin blóm eða setur niður sumarblóm á leiði ástvina sinna, heldur notar leirinn. Sigríður sýnir ljósmyndir af þessum leirskreytingum.
Einnig opið sunnudaginn 19. nóvember kl. 14:00 - 17:00. Allir velkomnir.

6. nóv. 2006

Rými

Vikuna 6. - 12. nóvember vinna nemendur á fyrsta til þriðja ári í fagurlistadeild Myndlistakólans á Akureyri verkefni í Populus tremula og víðar í Gilinu. Verkefnið er undir leiðsögn Þórarins Blöndal myndlistarmanns og ber titilinn Rými.

Laugardaginn 11. nóvember kl. 14:00 verða svo opnaðar sýningar á ýmsum stöðum í Gilinu og þar á meðal í Populus tremula.
Allir velkomnir.