23. des. 2011

ÁRAMÓTAUPPGJÖR 2011 – tónleikar







Föstudagskvöldið 30. desember 2011 kl. 22:00 verður haldið
ÁRAMÓTAUPPGJÖR POPULUS TREMULA

Árið kvatt með fjölbreyttri tónlistardagskrá að hætti hússins

Tekið verður úr lás kl. 21:30
Aðgangur ókeypis – Malpokar leyfðir

Fleiri myndir er að finna hér: http://populuspanodil.blogspot.com/

5. des. 2011

Sýning og jólabazar | Opnun 10. des.













NÚ Á ÉG HVERGI HEIMA og JÓLABAZAR HELGA OG BEATE

Laugardaginn 10. desember kl. 14.00 opna Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Hjálmar Stefán Brynjólfsson sýninguna Nú á ég hvergi heima í Populus tremula.

Síðasta sýning í þríleik um bókmenningu. Tileinkuð Norðurlandi, íslensku sveitinni og farvegi tímans.

Einnig opið sunnudaginn 11. desember kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.

---

JÓLABAZAR Helga og Beate
verður haldinn í Populus tremula í desember líkt og undanfarin ár.

Jólatré, járnvara, kjólar og alls konar heimaræktaðar gersemar.

Tískusýning laugardaginn 10. des. kl. 15:00

Opið 10. og 11. desember og 17. - 23. desember klukkan 13.00-18.00