27. okt. 2008

8-villt | 1. nóvember


8-villt
GUÐRÚN VAKA
1.-2. nóvember

Laugardaginn 1. nóvember kl. 14:00 opnar Guðrún Vaka myndlistarsýninguna 8-villt í Populus tremula.

Þar sýnir Guðrún ný verk sem fjalla um þá sérvisku Akureyringa að tala í áttum. Þetta er þriðja einkasýning Gurðúnar Vöku sem einnig hefur tekið þátt í samsýningum. Guðrún Vaka útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri 2006.

Einnig opið sunnudaginn 2. nóvember kl. 14:00-17:00. Aðeins þessi eina helgi.

21. okt. 2008

FYRSTA ÞJÓÐLEGA LJÓÐAHÁTÍÐ NÝHILS | 24. okt.


FYRSTA ÞJÓÐLEGA LJÓÐAHÁTÍÐ NÝHILS | 24. okt.

Föstudaginn 24. októberklukkan 21:00 fer fyrsta þjóðlega ljóðahátíð Nýhils fram í Populus tremula. Fram koma skáldin: Arngrímur Vídalín, Gunnar Már Gunnarsson, Gréta Kristín Ómarsdóttir, Haukur Már Helgason, Jón Örn Loðmjörð, Kristín Svava Tómasdóttir og Richard Vaughn.

Flest skáldanna komu fram á Fjórðu alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils sem haldin var 22.-24. ágúst í Norræna húsinu. Mörg þeirra hafa nú þegar gefið út verk sín hjá Nýhil eða Populus tremula en útgáfa á verkum annarra er í burðarliðnum. Menningarráð Eyþings gerði aðstandendum kleift að halda hátíðina.

Húsið verður opnað kl. 20:00 – Aðgangur ókeypis – Malpokar leyfðir – Bækur til sölu

20. okt. 2008

MYNDIR & KVÆÐI | 25.okt.






MYNDIR & KVÆÐI
ljósmyndasýning og ljóðabók
AÐALSTEINN SVANUR SIGFÚSSON

Laugardaginn 25. október kl. 14:00 verður opnuð ljósmyndasýning í Populus tremula.

Þar sýnir Aðalsteinn Svanur Sigfússon stórar bleksprautuprentaðar ljósmyndir frá Aðalvík á Hornströndum þar sem náttúran ríkir ein.

Jafnframt kemur út hjá Populus tremula bókin KVÆÐI með ljóðum Aðalsteins þar sem hann sækir yrkisefni til Aðalvíkur og nágrennis.

Aðalsteinn Svanur hefur haldið á þriðja tug einkasýninga síðasta aldarfjórðunginn og gefið út tvær ljóðabækur.

Einnig opið sunnudaginn 26. október kl. 14:00-17:00.

12. okt. 2008

SICKBIRD & GÓÐIR GESTIR | 18. okt.


SICKBIRD & GÓÐIR GESTIR
Laugardaginn 18. október
TÓNLEIKAR

Laugardaginn 18. október kl. 22:00 verða haldnir tónleikar í Populus tremula. Þar mun Konni Sickbird flytja eigin lög og annarra ásamt hópi góðra gesta.

Sickbird hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir frábæra tónlist og flutning. Gestir Konna eru afburðafólk á sviði söngs og hljóðfæraleiks.

Húsið verður opnað kl. 21:30 – Aðgangur ókeypis – Malpokar leyfðir