24. feb. 2014

DREKAMEZZA V



Föstudaginn 28. febrúar kl. 19.19 til 00.00 heldur vínyl-kanilsnúðurinn Delightfully Delicious (AKA Arnar Ari) fimmtu Drekamezzuna í Populus tremula. Hann mun snúa sér og öðrum gegn einelti, ofbeldi og vanlíðan.

Allir velkomnir og þá sérstaklega tröll, álfar og hindurvættir. Aðgangur ókeypis.

18. feb. 2014

Populus tremula 10 ára í haust

Aðalfundur Populus tremula var haldinn með glæsibrag í húsakynnum félagsins að kvöldi laugardagsins 15. febrúar 2014.

Að vanda fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf með skýrslum ritara, formanns og gjaldkera og kosin var stjórn til eins árs. Hana skipa, líkt og undanfarin ár, Aðalsteinn Svanur formaður, Kristján Pétur ritari og Arnar Tryggvason gjaldkeri.

Haustið 2014 mun Menningarsmiðjan Populus tremula fagna tíu ára afmæli sínu og stefnir á að gera það með glæsibrag. Afmælishaldið verður helgað minningu okkar kæra félaga og vinar, Sigurðar Heiðars Jónssonar, Papa Populus, sem féll frá langt fyrir aldur fram 2011.

Eftir að fundi var slitið skemmtu félagsmenn sjálfum sér og hver öðrum að vanda með söng og hljóðfæraleik að hætti hússins.

Myndir af fundinum er að finna á hlekknum Populus panodil hér ofarlega til hægri á síðunni. Þökk sé Kristjáni Pétri aðalritara.

17. feb. 2014

Ólafur Sveinsson – TÍMAMÓT

Laugardaginn 22. febrúar kl. 14.00 opnar Ólafur Sveinsson sýninguna Tímamót í Populus tremula. Heiti sýningarinnar vísar til þess að 30 ár eru nú liðin frá fyrstu sýningu listamannsins, sem jafnframt verður fimmtugur í næsta mánuði. Málverk, myndir og minningar.

Sýningin er einnig opin sunnudaginn 23. febrúar kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.

11. feb. 2014

Trúbadorakvöld í Populus þann 14. febrúar



KRISTJÁN PÉTUR, GUÐMUNDUR EGILL og AÐALSTEINN SVANUR SIGFÚSSON

Föstudagskvöldið 14. febrúar kl. 21.00 munu ofantalin söngvaskáld halda ­tónleika í Populus tremula. Trúbadorarnir flytja frumsamið efni og fleira, hver með sínu nefi og ekki útilokað að fleiri stigi á stokk. Tónleikarnir eru haldnir til heiðurs styrktaraðilum Populus tremula.


Populus tremula verður opnað kl. 20:30 | Malpokar leyfðir | Aðgangur ókeypis eins og ávallt