Mary Zompetti sýnir
Laugardaginn 26. apríl kl. 14.00 opnar bandaríska listakonan Mary Zompetti, sem nú dvelur í Gestavinnustofu Gilfélagsins, sýninguna SEARCH/LIGHT í Populus tremula. Listakonan vinnur hér með íslenskt silfurberg og landslag. Hún notar ýmsa miðla, svo sem ljósmyndun, skanna, hreyfimyndir og myndvarpa í þessari margþættu innsetningu á verki í vinnslu.
Sýningin er einnig opin sunnudaginn 27. apríl frá 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
Um sýninguna skrifar Mary eftirfarandi:
Used by the Vikings to navigate the Arctic seas, the Icelandic Spar is a stone that allows for expanded vision though the refraction of light. Artist Mary Zompetti explores this stone and the Icelandic landscape through photographs, scanner-generated images, video and projection in this multi-media installation of works in progress.
Thoella – ljósmyndasýning um páskana
Laugardaginn 19. apríl kl. 14.00 opna Sigríður Ella Frímannsdóttir og Þórarinn Örn Egilsson ljósmyndasýninguna Thoella í Populus tremula.
Sýnd verða þrjú ljósmyndaverk: FYRST OG FREMST ER ÉG samandstendur af 21 portrettmynd Sirgíðar Ellu af einstaklingum með Downs heilkennið.
BLOODGROUP, ljósmyndabók úr myndaröð sem Sigríður Ella tók á tímabilinu frá 2011-2013 af hljómsveitinni Bloodgroup.
FEGURÐIN Í DAUÐANUM: Í þessu verkefni notar Þórarinn Örn sína túlkun til að sýna fegurðina í dauðanum.
Sýningin er einnig opin páskadag og annan í páskum kl. 14.00-17.00.
Aðeins þessi eina helgi.
Kristján Pétur sýnir og syngur
Laugardaginn 12. apríl kl. 14.00 opnar Kristján Pétur Sigurðsson sýningu á nýjum og gömlum höggmyndum, lágmyndum og ljósmyndum í Populus tremula. Enn er Kristján Pétur að krukka í form og merkingu hljómfræðitákna. Við opunina mun Kristján Pétur spila nokkur lög til að kynna útgáfu á splunkunýjum hljómdiski sínum er nefnist TVÖ LÖG.
Sýningin er einnig opin sunnudaginn 13. apríl frá 14.00-17.00.
Aðeins þessi eina sýningarhelgi en diskurinn verður áfram til sölu hjá Kristjáni Pétri.