17. jan. 2011

ANDREA WEBER | 22.-23. jan.







Laugardaginn 22. janúar kl. 14:00 opnar Andrea Weber myndlistarsýn­inguna Cinderella through the Air í Populus Tremula.

Andrea býr og starfar í Berlín og París. Í innsetning­um sínum túlkar hún umhverfi sitt, innblásin af náttúrunni, stórborgum, poppmenningu og tísku.

Sama dag kl. 15:00 opnar Andrea aðra sýningu í Galleri+ við Brekkugötu.

Sýningin er einnig opin sunnudaginn 23. janúar kl 14:00-17:00. Aðeins þessi eina helgi.

3. jan. 2011

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

Populus tremula óskar gleðilegs árs.

Jafnframt þökkum við öllum þeim fjölmörgu listamönnum sem lögðu hönd á plóginn til að gera árið 2010 eftirminnilegt menningarár í kjallaranum góða, sem og gestum öllum og félgsmönnum sem unnið hafa mikið og óeigingjarnt starf.

Þá er okkur ljúft og skylt að þakka styrktaraðilum Populus tremula fyrir stuðninginn sem gerir okkur mögulegt að halda úti svo þéttri dagskrá. Þeir eru Ásprent Stíll, Saga fjárfestingabanki, Norðurorka og Rub 23.

Við höldum órtauðir áfram.