6. feb. 2008

S M I T A N D I | 16. feb.





S M I T A N D I
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Myndlistarsýning og bók

Laugardaginn 16. febrúar klukkan 14:00 opnar Jóna Hlíf Halldórsdóttir myndlistarsýninguna S M I T A N D I í Populus tremula.
Jafnframt kemur út bókverkið S M I T eftir Jónu Hlíf.

Jóna Hlíf, sem er fædd árið 1978 í Reykjavík, býr og starfar á Akureyri. Hún stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri á árunum 2002-2005 og útskrifaðist með MFA gráðu frá Glasgow School of Art í júní 2007. Nánari upplýsingar um Jónu og verk hennar er að finna á heimasíðunni www.jonahlif.com

Sýningin verður einnig opin sunnudaginn 17. febrúar kl. 14:00 - 17:00. Aðeins þessi eina helgi.