Guðmundur Ármann sýnir
Laugardaginn 25. janúar kl. 14.00 opnar Guðmundur Ármann myndlistarsýninguna Nærlönd í Populus tremula.
Á sýningunni verða olíumálverk, vatnslitamyndir og þrívíð verk. Efniviður sýningarinnar hverfist um nærlönd við Eyjafjörð og listamaðurinn spyr: „Er hægt að mála það sem er óáþreifanlegt – andrúmið, birtuna, ilminn, hita eða kulda, það sem við finnum og skynjum?“
Sýningin er einnig opin sunndudaginn 26. janúar kl. 14.00-17.00.
Aðeins þessi eina helgi.
<< Home