RÖGNVALDUR GÁFAÐI
Laugardaginn 9. nóvember kl. 14.00 opnar Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson myndlistarsýninguna Kassar, kúlur og kynjaverur í Populus tremula. Rögnvald gáfaða þekkja landsmenn sem tónlistarmann og uppistandara, svo fátt sé nefnt. Á undanförnum árum hefur hann snúið sér í auknum mæli að myndlist. Þetta er önnur einkasýning Rögnvaldar í Populus tremula.
Sýningin er einnig opin sunnudaginn 10. nóvember kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
<< Home