Laugardaginn 23. júní kl. 14.00 munu félagsmenn í Populus tremula opna samsýningu í Populus tremula. Á opnunardaginn munu listamennirnir flytja fjölbreytta tónlist að hætti hússins, einir eða fleiri saman.
Jafnframt verður haldin BÓKAMESSA Populussamsteypunnar þar sem bókaútgáfa hennar verður kynnt á tilboðsverði, samtals um 20 titlar bóka.
Einnig opið sunnudaginn 24. júní kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
MEÐ MESSUHALDI ÞESSU LÝKUR ENN EINU STARFSÁRI POPULUS TREMULA.
Mun fleiri myndir er að finna á tenglinum Populus panodil, hér efst til hægri á síðunni. Myndirnar tóku Kristján Pétur og Fróðný – þökk sé þeim.
<< Home