Friðþjófur Helgason – SEMENT
Laugardaginn 5. apríl kl. 14.00 opnar Friðþjófur Helgason ljósmyndasýninguna Sement í Populus tremula. Friðþjófur er löngu landsþekktur ljósmyndari og kvikmyndatökumaður. Eftir hann liggja fjölmargar ljósmyndabækur og sýningar. Á þessari sýningu eru nýjar myndir sem allar eru teknar í semenstverksmiðjunni á Akranesi, sem hefur verið aflögð.
Þessari sömu sýningu var frestað fyrir tveimur vikum vegna veðurs og ófærðar.
Sýningin er einnig opin sunndudaginn 6. apríl kl. 14.00-17.00.
Aðeins þessi eina helgi.
<< Home